Lára hefur verið atvinnudansari síðan 1980 og var fastráðinn við Íslenska dansflokkinn frá 1982 til 2004. Hún dansaði fjölda leiðandi hlutverka á þessum árum með flokknum. Lára hefur lengi unnið sem danshöfundur og samið fjölda dansverka, m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn, Listdansskóla Íslands, Pars Pro Toto dans-leikhús, og séð um dans/sviðshreyfingar við helstu leikhús landsins. Hún lauk mastersnámi í kóreógrafíu við Middlesex University, London vorið 2006. Af dansverkum hennar má nefna Hræringar (1997), Langbrók (1999), Alfa (2000), Elsa (2000), Jói (2001) Da (2001) og Frosti (2003) samið í tilefni af 30 ára afmæli Íslenska dansflokksins. Síðustu verk Láru eru Luna (2004), Von (2005), Áróra Borealis (2005) og G.duo (2007). Lára hefur unnið til fleiri viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín. Árið 1998 fékk hún fyrstu verðlaun í Danshöfundasamkeppni Íd fyrir verkið Minha Maria Bonita, í júní 2001 hlaut verk hennar, Elsa, fyrstu verðlaun í alþjóðlegri danshöfundasamkeppni í Helsinki í Finnlandi og í mars 2002 hlaut dansverkið Jói einnig fyrstu verðlaun í sólódansleikhúskeppni í Stuttgart í Þýskalandi. Dansverkið Lúna, hlaut Grímuverðlaunin 2004. Fleiri verk Láru hafa fengið tilnefningar til Grímunnar
 Lára Stefánsdóttir varð vottaður Pilates leiðbeinandi haustið 2003 frá "The Pilates studio" í Den Haag, Hollandi, þar sem Marjorie Oron er stjórnandi. Marjorie Oron og Philippe Taupin sem rekur Pilates studio í París, eru helstu "Authentic Pilates" leiðtogar í Evrópu og þjálfa upp Pilates leiðbeinendur sem læra eingöngu "Ekta Pilates" eða "True Pilates" sem er nú undir forrystu eina núlifandi nemanda Josefs Hubertus Pilates - Romana Krysanowka. Lára tók hluta námsins hjá Philippe Taupin í París og framhaldsnámskeið hjá Romana Krysanowka.

Lára Stefánsdóttir - sími: 354-899 4913 - netfang: lara hjá larastef.is