Pilates
Ekta Pílates

[námskeið]
[myndasyrpa]

Um Pílates

[lesa]

Ekta


Hópnámskeið - 2009[skráning]


Gólfæfingar Pilates á dýnu eru stundaðar í hópum, allt að 10 þátttakendur í hópi. Tímar eru ákveðnir í samráði við leiðbeinendur og reynt að mæta óskum þátttakenda sem er skipt í hópa eftir aldri, getu og fyrri þjálfun. Nánari tímasetningu og verð er að finna neðar á síðunni

Það er eindregið mælt með að taka 10 tíma til að finna raunverulegan árangur eða eins og sagt er:
Eftir 10 tíma finnur þú mun
Eftir 20 tíma sjá aðrir mun
Eftir 30 tíma ertu breytt manneskja


Námskeið fyrir byrjendur
Námskeið fyrir byrjendur og einnig þá sem vilja rifja upp "basic" atriði í Pilates.
Hádegistímar mánudaga og miðvikudaga kl.12.05 – 13.00.

Nýtt námskeið hefst 6. apríl 2009.

Byrjendur og lengra komnir
Morguntímar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8.05 – 9.00.

Námskeið í gangi, en laus pláss.
Ef áhugi er fyrir hendi þá vinsamlegast hafið samband í tölvupósti við Láru eða í síma 899 413.

Sérstakir byrjendatímar fyrir karla
Þriðjudaga og föstudaga kl. 14.30 – 9.00.

Námskeið hefst 20. mars 2009.

Framhaldsnámskeið
Það er mögulegt að taka framhaldsnámskeið ef einkatími er tekinn á undan eða í samráði við leiðbeinanda. Ef áhugi er fyrir hendi þá vinsamlegast hafið samband í tölvupósti við Láru eða í síma 899 4913
Síðdegistímar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.05 - 18.00.

Nýtt námskeið hefst 13. jan 2009.

Verð: 5 vikur kr.16.000 / 10 vikur kr. 30.000

skráning

Einkatímar - 2009[skráning]


Einkatímar í Pilates eru ákveðnir eftir samkomulagi. Hver tími er 1 klst og eru æfingar gerðar á þar til gerðum Pilates tækjum sem hönnuð eru af fyrirtæki sem nefnist Gratz og er staðsett í New York.

Verð: kr. 6.000 (stakir tímar), kr. 50.000 (10 tímar)

skráning

Lára Stefánsdóttir - sími: 354-899 4913 - netfang: lara hjá larastef.is